IHM - Innheimtumiðstöð gjalda

Samtökin heita Innheimtumiðstöð gjalda skv. 11. gr. höfundalaga nr. 73/1972, skammstafað IHM. 

Aðaltilgangur IHM er að annast innheimtu gjalda af tækjum, diskum plötum eða öðrum hlutum til hliðrænnar eða stafrænnar upptöku. Nánar er þetta tilgreint í ofangreindum lagaákvæði sbr. 2. grein laga nr. 60/2000 og reglugerð nr. 125/2001, sbr. reglugerð nr. 168/2001, sbr. reglugerð 227/2001.

Aðilar að IHM eru  STEF (Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar), SFH (Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda), RSÍ (Rithöfundasamband Íslands), Hagþenkir, (Félag höfunda fræðirita og kennslugagna), (Blaðamannafélag Íslands) SKL (Samtök kvikmyndaleikstjóra) F-SÍK (Framleiðendafélagið-Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda)  FÍL (Félag íslenskra leikara) FK (Félag kvikmyndagerðamanna), Myndstef og Félag leikstjóra á Íslandi.

Önnur félög en þau, sem að framan eru greind, geta sótt um aukaaðild að samtökunum enda teljast þau hafa verulegra hagsmuna að gæta á þessu sviði.


 

 

IHM Innheimtumiðstöð gjalda / Laufásvegur 40 / 101 Reykjavík / Sími 562 6595