Samþykktir fyrir IHM 1. Nafn og aðsetur 1.1. Samtökin heita Innheimtumiðstöð gjalda skv. 11. gr. höfundalaga, skammstafað IHM. Heimili miðstöðvarinnar og varnarþing er í Reykjavík. 2. Tilgangur og viðfangsefni 2.1. Innheimtumiðstöðin er hagsmunasamtök höfunda, listflytjenda og framleiðenda til réttargæslu í samræmi við 11. gr. 3. og 4. mgr. höfundalaga. Innheimtumiðstöðin hefur það ekki að markmiði að safna eignum í eigin þágu. 2.2. Innheimtumiðstöðin hefur eftirfarandi viðfangsefni í samræmi við tilgang sinn: 1. Að safna upplýsingum, annast innheimtu gjalda skv. 3. og 4. mgr. 11. gr. höfundalaganna og skipta þeim milli aðildarfélaganna.
3.1. Aðilar að samtökum þessum eru: STEF, Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar, SFH, Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda, Rithöfundasamband Íslands, Blaðamannafélag Íslands, Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda, Félag kvikmyndagerðarmanna, Samtök kvikmyndaleikstjóra, Félag leikstjóra á Íslandi, Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna og Myndstef. Önnur félög en þau, sem að framan eru greind, geta sótt um aukaaðild að samtökunum enda teljast þau hafa verulegra hagsmuna að gæta á þessu sviði.
4.1. Stjórn samtakanna skipa sjö menn, tveir tilnefndir af STEFi, tveir af SFH, einn af Rithöfundasambandi Íslands, einn af Sambandi íslenskra kvikmynda-framleiðenda og einn af Samtökum kvikmyndaleikstjóra. Varamenn skulu vera jafnmargir aðalmönnum og tilnefndir á sama hátt. Stjórnin velur sér formann og varaformann. Tilnefning stjórnarmanna gildir í tvö ár. 4.2. Stjórnin stýrir starfsemi samtakanna. Fundi skal halda með hæfilegum fyrirvara þegar formaður ákveður eða einn stjórnarmanna óskar þess. Fundargerðir stjórnarfunda skulu sendar til stjórnarmanna og einstakra aðildarsamtaka. 4.3. Hver stjórnarmaður hefur eitt atkvæði. Stjórnarfundur er lögmætur þegar formaður og þrír meðstjórnendur sækja fund sjálfir eða varamenn þeirra. 4.4. Fulltrúaráð samtakanna skipa fulltrúar sem tilnefndir skulu til tveggja ára af aðildarsamtökunum sem hér segir: Tveir fulltrúar og tveir til vara, tilnefndir af STEFi. Stjórnarmenn samtakanna eiga og sæti í fulltrúaráði samtakanna og hafa þar atkvæðisrétt, málfrelsi og tillögurétt. Samtök, sem öðlast hafa aukaaðild að samtökunum, hafa og rétt til að tilnefna áheyrnarfulltrúa til setu á fundum fulltrúaráðsins án atkvæðisréttar. Ef skipting á tekjum samkvæmt grein 5.2. breytist skal endurskoða fjölda fulltrúa frá einstökum aðildarsamtökum í stjórn og fulltrúaráði. 4.5. Aðalviðfangsefni fulltrúaráðsins eru þessi. 1. Að ákveða í aðalatriðum störf og stefnu Innheimtumiðstöðvarinnar. 4.6. Aðalfund fulltrúaráðsins skal halda í aprílmánuði ár hvert. Skal til hans boðað með ábyrgðarbréfum með tveggja vikna fyrirvara. Aðra fundi í fulltrúaráðinu skal boða á sama hátt. Á aðalfundi skal taka fyrir þessi mál: Fulltrúaráðið kemur annars saman þegar stjórnin, endurskoðendur eða a.m.k. eitt aðildarsamband óskar þess. Geta skal dagskrár í fundarboði. Tillögur til aðalfundar skulu berast eigi síðar en 1. apríl ár hvert. 4.7. Fundinum stjórnar formaður fulltrúaráðsins. Ekki verður ályktað um mál, sem ekki er getið í fundarboði. Ákvarðanir skulu teknar með meirihluta atkvæða, sé annað ekki sérstaklega ákveðið.
5.1. Til að mæta óvæntum kröfum aðila, sem standa utan IHM, og kostnaði IHM, öðrum en rekstrarkostnaði, skal árlega leggja í varasjóð 5% af vergum. Þegar höfuðstóll sjóðsins er orðinn kr. 2.500.000,- miðað við núverandi verðlag, falla greiðslur til hans niður. Sé gengið á höfuðstólinn skulu greiðslur til hans hefjast að nýju skv. sömu reglum. 5.2. Eftir að greitt hefur verið til varasjóðs skv. 5.1. og fé lagt til hliðar til greiðslu rekstrarkostnaðar skal skipta rekstrarafgangi samtakanna, að frádregnu 15% framlagi í Menningarsjóð, á milli aðildarsamtakanna, s.s. hér segir: 1. Tekjur af auðum hljóðböndum og hljóðbandatækjum skal skipta í þessum hlutföllum: STEF 39%, SFH 54%, og Rithöfundasamband Íslands 7%. 2. Tekjum af myndböndum og myndbandstækjum skal skipta á milli aðildarsamtaka í þessum hlutföllum: STEF 13%, Rithöfundasamband Íslands og Hagþenkir samtals 16%, Samtök kvikmyndaleikstjóra 12%, Myndstef 3,5%, þar af skal hlutdeild leikmynda- og búningahöfunda vera 2/3 en hlutdeild annarra myndhöfunda 1/3, Blaðamannafélag Íslands 2,5%, Félag kvikmyndagerðarmanna 4,5%, Félag leikstjóra á Íslandi 2,5%, Félag íslenskra hljómlistarmanna 10%, Félag íslenskra leikara 13%, Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda 15% og Samband hljómplötuframleiðenda 8%. Endurskoða skal framangreinda skiptingu á milli aðildarsamtakanna ef eitthvert þeirra krefst þess. Skal krafa þess efnis vera gerð með eins árs fyrirvara, miðað við áramót. Náist ekki samkomulag um breytingu á skiptingunni skal gerðardómur skv. 6.1. og 6.2. skera úr ágreiningnum. Aðildarsamtök skulu úthluta einstaklingsbundið til rétthafa þar sem því verður við komið, m.a. í formi styrkja. Að öðru leyti skulu hver samtök ráðstafa sínum hluta samkvæmt reglum sem í gildi eru í hverjum þeirra fyrir sig.
6.1. Fulltrúaráð IHM skal, ef tilefni gefst, koma á fót gerðardómi sem skipaður skal þremur dómurum, sem sérfróðir eru á sviði höfundaréttar. 6.2. Gerðardómurinn er eini dómstóllinn með lögsögu í ágreiningsmálum milli aðildarfélaganna um skilning á samþykktum IHM og meðferð á fé og skiptingu fjár. Ágreiningur milli aðildarfélaganna verður því aðeins lagður í gerð, að um hann hafi áður verið fjallað í stjórninni. Stefnu til gerðardóms verður að senda í síðasta lagi tveimur mánuðum eftir að stjórnin hefur ályktað um málið og kynnt ályktunina fyrir aðilum. Að greindu tímamarki liðnu skal vísa máli frá. Að öðru leyti gilda reglurnar í lögum um meðferð einkamála í héraði.
7.1. Til breytinga á samþykktum þarf meirihluta, 3/4 hluta atkvæða á fundi, þar sem minnsta kosti 4/5 hlutar aðildarfélaganna eru mættir. 7.2. Fulltrúaráð skal slíta IHM ef þess er krafist af 3/4 hlutum aðildarfélaganna. Við félagsslit ákveður menntamálaráðuneytið hvernig ráðstafa skal eignum IHM til hagsbóta fyrir rétthafa. Í samræmi við 4.mgr. 11. gr. höfundalaga nr. 73/1972 sbr. lög nr. 78/1984 staðfestast ofangreindar samþykktir hér með. Samþykktir þessar öðlast þegar gildi og falla jafnframt úr gildi samþykktir frá árinu 1996 fyrir Innheimtumiðstöð gjalda skv. 11. gr. höfundalaga. Desember 1999
|
|||
|
IHM Innheimtumiðstöð gjalda / Laufásvegur 40 / 101 Reykjavík / Sími 562 6595 |
|||