Fulltrúaráð IHM
Fulltrúaráð samtakanna skipa fulltrúar sem tilnefndir skulu til tveggja ára af aðildarsamtökunum sem hér segir: 

  • Tveir fulltrúar og tveir til vara, tilnefndir af STEFi.
  • Fjórir fulltrúar og tveir til vara, tilnefndir af SFH.
  • Tveir fulltrúar og einn til vara, tilnefndir af Rithöfundasambandi Íslands.
  • Einn fulltrúi og einn til vara, tilnefndir af öðrum aðildarsamtökum,  hverjum  um sig.

Stjórnarmenn samtakanna eiga og sæti í fulltrúaráði  samtakanna og hafa þar atkvæðisrétt, málfrelsi og tillögurétt. Samtök, sem öðlast hafa aukaaðild að samtökunum, hafa og rétt til að tilnefna áheyrnarfulltrúa til setu á fundum fulltrúaráðsins án atkvæðisréttar.

Aðalviðfangsefni fulltrúaráðsins eru þessi:

  • Að ákveða í aðalatriðum störf og stefnu  Innheimtumiðstöðvarinnar.
  • Að hafa eftirlit með starfsemi hennar.
  • Að taka afstöðu til aðildar nýrra samtaka.

Fulltrúaráðið er skipað eftirtöldum aðilum:

Frá STEFi eru fulltrúarnir Eiríkur Tómasson, Magnús Kjartansson, Kjartan Ólafsson, Gunnar Stefánsson

 

Frá SFH eru fulltrúarnir Gunnar Guðmundsson, Björn Árnason,

Edda Þórarinsdóttir, Ásmundur Jónsson

 

Frá RSÍ eru fulltrúarnir  Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og Ragnheiður Tryggvadóttir 

 

Frá SKL eru fulltrúarnir Friðrik Þór Friðriksson og  Erla S. Árnadóttir

 

Frá F-SÍK eru fulltrúarnir Tómas Þorvaldsson og Skúli Malmquist

 

Frá FK er fulltrúi Björn Br. Björnsson

 

Frá Myndstefi er fulltrúi Knútur Bruun

 

Frá Hagþenki er fulltrúi Eggert Þór Bernharðsson   

 

Frá FÍL  er fulltrúi Randver Þorláksson  

 

Frá BÍ er fulltrúi Hjálmar Jónsson

 

Formaður fulltrúaráðs er Edda Þórarinsdóttir.

 


 

 
 

IHM Innheimtumiðstöð gjalda / Laufásvegur 40 / 101 Reykjavík / Sími 562 6595
 

IHM Innheimtumiðstöð gjalda / Laufásvegur 40 / 101 Reykjavík / Sími 562 6595